Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Gleđileg jól!!!

24. desember 2008 klukkan 01:49
Mig langar að óska landsmönnum nær og fjær hugheilar, hjartnæmar jóla- og nýárskveðjur Innocent.

Og svo vil ég líka óska diggum lesendum þessara síðu gleðilegrar jóla og megi þið eiga frábært nýtt ár.  Þakka allt liðið.
Kveðja Róbert
robert.bloggar.is
Róbert Halbergsson
1 athugasemd

Smá mont

20. september 2008 klukkan 00:16
Langar bara aðeins að monta mig.  Var að skila þessum verkefnum í vikunni og langar að sýna ykkur þetta.

Bláa bókin
Hundafóður - Dogbites

P.S
Það voru skilyrði að þetta yrði gert fyrir skjáupplausnina 1024 * 764 þannig að það gæti komið eitthvað skrítið út ef það er notuð hærri upplausn og aðrir netskoðarar.
Róbert Halbergsson
5 athugasemdir

KLUKK KLUKK!!!

13. september 2008 klukkan 21:50
Halló halló!!!

Ekki láta ykkur bregða, það er komið eitthvað hérna inn.  Það er reyndar aðalega útaf því að ég var að pressa Guðnýju að koma með nýtt blogg og svo var Biggi að klukka mig.

Það er hrikalega gaman í skólanum hjá okkur núna og by far miklu skemmtilegra í skólanum núna heldur enn í fyrra.  Maður er í HTML kóðun (heimasíðugerð), photoshop, auglýsingasálfræði og skipulagsfræði í staðin fyrir heimspeki, stærðfræði, eðlis- og efnafræði.  Manni líður ekkert eins og í skóla, ég er bara að gera eitthvað sem mér finnst skemmtilegt og hef mikin áhuga á.

Jæja þá kemur af klukkinu:

Fjögur störf sem ég hef unnið um um ævina:
Samskip
Íslandspóstur (fyrst Póstur og Sími)
Eico
Síminn

Fjórar kvikmyndir sem ég held mikið upp á:
Usual suspect
LA Confidential
Batman begins
Ace Ventura: Pet detective

Fjórir staðir sem ég hef búið á:
Jörfabakki
Blöndubakki
Hraunbær
Aalborg

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
Two and a half men
Friends
Rejseholdet
1 mod 100

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
USA
Portúgal
Ítalía
Danmörk

Fjórar síður sem ég skoða daglega í fyrir utan blogg:
mbl.is
facebook.com 
Kop.is
LFC.tv

Fernt sem ég held upp á matarkyns:
Kjúklingur í pestó (ala Guðný)
Soðin ýsa
Pastarétturinn hennar Guðnýjar
Hamborgarhryggur

Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna:
Liverpool
Íslandi (partý hjá Valgeiri núna)
New York
Sidney

Fjórar bækur sem ég les oft:
Ég er ekki mikill lestrarhestur þannig að kemur ekkert upp hérna
nema kannski skólabækur eins og er, en ef að mig langar að lesa eitthvað
þá líður það hjá mjög fljótlega eða að ég hlusta á söguna á hljóðbók

Ég ætla að klukka Valgeir og Þórey Örnu,  Kristín frænka
Róbert Halbergsson
4 athugasemdir

Bergmál í hálftómri íbúđ

22. júní 2007 klukkan 04:32

Hæ hæ!!!

Nú er vika í að gámurinn kemur til okkar og svo flytjum við út 17.júli!!!

Það er orðið ansi fátt sem á eftir að fara ofan í kassa hjá okkur nema kannski eldhúsið það er ekki hægt að pakka ofan í það fyrr en nær dregur að gámi en flest annað er komið ofan í kassa og þeir komnir á annað hundraðið.

Ísabella Lind var að fá nýjan bílstól í dag og henni finnst hann æði, hérna er mynd því til staðfestingar




Jæja ég nenni ekki að hafa þetta lengra heyrumst seinna.....

Róbert Halbergsson
5 athugasemdir

Róbert Háskólanemandi

13. apríl 2007 klukkan 13:29
Hæ hæ!!!

Var að fá þær frábæru fréttir frá Álaborg að við Guðný værum að komast formlega inn í Aalborg Universitet!!!!!  Þetta er merkur áfangi fyrir okkur þannig að við eigum bara eftir að fá staðfestingu vegna íbúðar, erum á biðlista hjá einni leigumiðlun og svo erum við í netfangssambandi við einn í Ísrael vegna húss sem er stutt frá skólanum. 

Ég er fara í sumarbústað núna seinna í dag með familíunni og fleira vinafólki, það verður væntanlega magnað.  Ég sendi bara Guðnýju á undan mér þannig að hún verður búin að renna í pottinn fyrir mig og elda þegar ég kem til þeirra úr vinnunni.

Annars er allt gott að frétta er að fara í feðraorlof núna 2. maí.  Ísabella er alltaf á ferðinni, ef maður leggur hana einhverstaðar niður þá er hún fljót að klaungrast eitthvað í burtu, hún er rosalega dugleg að reyna bjarga sér og heldur að hún geti gert miklu meira heldur en hún getur.  Við erum að reyna að flýta eins og við getum ættleiðingarferlinu fyrir Nathalie en það er ekki að ganga vel fórum um daginn til Mr. Potatohead him self og ætluðum að athuga hvað hann gæti gert en hann sagði að það væru litlar líkur á að geta flýtt þessu nokkuð.  Andrea var um daginn í afmælinu hennar mömmu eitthvað að leika sér inni í herbergi og kemur svo fram með alblóðuga litlutá og það kom út úr dúrnum að það þurfti að sauma 2 spor og táin var brákuð þannig að hún er núna haltrandi út um allt.

Segi þetta gott í bili ætla að fara halda áfram að vinna.
Róbert Halbergsson
2 athugasemdir

TADARA

21. október 2006 klukkan 22:33

Ég ákvað að henda inn einni færslu hérna inn vegna þess að það er svo lítið að gera í vinnunni.  Það hefur verið rosalega mikið að gerast hjá mér síðan síðast þannig að ég hef ekki nennt að henda inn neinni færslu hérna inn.

Ísaella Lind er alveg æði, vissi ekki að það væri svona frábært að eignast lítið kríli. 

Annars er maður bara að drepast úr leiðindum þegar það er ekkert að gera í vinnunni og maður að vinna á laugadegi.

heyrðu vonandi líður ekki lengri tími þangað til næsta færsla kemur.

Bæ bæ

Róbert Halbergsson
5 athugasemdir

Smá svona

11. júlí 2006 klukkan 01:50

Jæja þá eru HM búið að liðin sem ég hélt með gátu þannig lagað ekki blautan, Brassarnir eru með gamalt og hægt lið og gátu ekki mikið, og maðurinn sem maður hélt að myndi brillera Ronadinho, miðað við veturinn, var ekki að gera gott og gamli skallapopparinn hann Zidane sem gat ekkert á tímabilinu átti rosalega gott mót eftir 16 liða úrslitin fram að framlenginunni í úrslitaleiknum.  Enskir áttu ekki gott mót bara svona að vanda það er alltaf gerðar rosalegar vonir um þá en svo þegar á hólminn er komið þá geta þeir ekki neitt, alveg fáránlegt hvernig Göran kallinn valdi liðið, reyndar ekki mikið um að velja samt.

Annars er margt að gera á heimilinu hjá okkur, Guðný er langt komin með að fæða frumburðin minn og mig hlakkar ógeðslega mikið til þegar hann/hún kemur í heiminn.  Heimilið og við erum alveg ready og erum bara að bíða spennt eftir krílinu okkar.

Róbert Halbergsson
2 athugasemdir

Easy Rider

16. júní 2006 klukkan 07:02
Fann þetta skemmtilega persónuleikapróf á netinu, finnst þetta frekar fyndið.

Róbert Halbergsson
1 athugasemd

HELLÓ!!!!!!!

14. júní 2006 klukkan 02:24
Ég ætla að tékka mig inn hérna vegna fjölda áskorana og vondandi verður ekki svona langt í næsta innlegg frá mér en það er styttra síðan ég bloggaði en bróðir minn hann Valgeir. Ullandi Nú er gleðinn byrjuð þ.e.a.s. HM með allri sinni dýrð og fullt af fótboltaleikjum.  Kallinn átti afmæli í gær og bættist eitt ár við að ná konunni minni þannig að það er bara 3 ár núna þangað til að ég næ henni (verða konur ekki bara 29 ára svo ekki meir Saklaus).  Svo 060606 þá átti Andrea afmæli og í tilefni dagsins þá hélt Bubbi líka þessu flotta tónleika.  Nokkrum dögum seinna eða þann 11.06.2006 þá áttum við hjóninn pappabrúðkaupsafmæli og sama dag þá vorum við með smá kaffi fyrir fjölskylduna okkar í tilefni afmælianna allra en í vinnunni í dag þá var heljarins kökuhlaðborð og bara í tilefni gærdagsins.

Svo er skondin texti sem ég fékk sendan á pósti um daginn í vinnunni.

Þú veist að það er 2006 ef.....


1. Þú ferð í Party og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.

2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.

3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er að því þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á MinnSirkus .

4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta bara á takkann á sjónvarpinu.

6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.

7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.

8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.

9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir númer fimm.

10. Þú virkilega skrollaðir tilbaka til að athuga hvort þar væri númer fimm.

11. Svo hlærðu af heimsku þinni.

12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri einhverstaðar EF þú félst fyrir þessu ... Aha ekkert svona fyrst að þú féllst fyrir þessu.

Auðvitað fellur maður fyrir svona Glottandi

Róbert Halbergsson
1 athugasemd

Nú er öllum lokiđ!!!!

10. maí 2006 klukkan 22:49
Jæja þá þarf að koma eitthvað nýtt, ég er farinn að blogga.  Ég lofa engu stórbloggi svona allavegana ekki til að byrja með en það verður kannski í náinni framtíð eitthvað frekar að frétta af mér og minni fjölskyldu.
Róbert Halbergsson
4 athugasemdir